Kanadamenn kveðja

Kanadísku kennaranemarnir sem dvalið hafa í FSu undanfarnar vikur kvöddu skólann á kennarafundi á föstudaginn. Þau sýndu myndir frá veru sinni hér á landi, leystu kennara og skólann út með gjöfum og sungu ættjarðarlag frá heimaslóðum sínum. Við heimkomuna bíður þeirra útskrift úr kennaranáminu.