Kærleikur og knús

Febrúar er kærleiksmánuður í FSu. Í vikunni var haldinn kærleiksdagur þar sem nemendur bjuggu til kærleiksrík og uppörvandi setningar sem hengdar voru víðsvegar um skólann, kærleiksrík tónlist ómaði og kórfélagar seldu vöfflur.  Knúskallar voru einnig á ferð og föðmuðu og kreistu alla sem vildu. Á myndinni má sjá knúskallana knúa Olgu Lísu, skólameistara og Idu, dönskukennara.