Jólasýning á Vogi

Mánudaginn 29. nóvember hélt FAT-hópurinn hennar Helgu Jóhannesdóttur svonefndan Jólasýningarfund á heimili hennar að Vogi í Ölfusi. Hluti af markmiðum áfangans er nefnilega að bjóða útvöldum gestum að skoða verkefni nemenda og þiggja smá veitingar í leiðinni. Allir leggja í púkk, stundum er höfð tónlist og sagðir brandarar en fyrst og fremst dáðst að verkefnum nemenda, í þetta sinn jólaskrauti og kortum.