Jólalegt í FSu

Það hefur verið sannkölluð jólastemning hjá starfsfólki FSu í desember. Kaffistofa kennara hefur verið skreytt hátt og lágt af starfsmönnum fæddum í nóvember og desember, en sömu starfsmenn buðu upp á jólakaffihlaðborð í byrjun mánaðarins. Starfsfólk skrifstofa skólans sem og mötuneyti er einnig í jólastuði og hefur einnig skreytt allt hjá sér. jol3

Sú skemmtilega hefð hefur skapast að starfsfólk hefur tekið að sér að búa til kósístemingu á kaffistofunni í hverjum mánuði og sjá þá þeir sem eru fæddir í viðkomandi mánuði um kaffið hverju sinni. Þannig hefur verið boðið upp á vorkaffi og októberfest svo eitthvað sé nefnt.