Jólahangiketið

Hið árvissa jólaprófahangiket var snætt 3. desember. Alllöng hefð er fyrir því að skólinn bjóði starfsmönnum sínum til slíkrar veislu í byrjun jólaprófanna. Er ekki laust við að sumir hlakki til þessa dagamunar drjúgan hluta haustannar. Samkvæmt venju var tekið hraustlega til matarins, eða eins og starfsmaðurinn á elliheimilinu sagði forðum: „Þegar þetta fær að éta, þá ganga á því höndurnar."