Jöfnunarstyrkur

Nemendur á framhaldsskólastigi sem stunda reglubundið nám fjarri heimahögum og fjölskyldu geta átt rétt á jöfnunarstyrk. Nemandi telst stunda reglubundið nám hafi hann gengið til prófs í a.m.k. 20 einingum á önn

Umsóknarfrestur vegna haustannar 2020 er til 15. október næstkomandi.

Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn með rafrænum skilríkjum eða með íslykli á heimasíðu Menntasjóðs námsmanna menntasjodur.is eða island.is

Á heimasíðu Menntasjóðsins má einnig sjá nánari úthlutunarreglur vegna jöfnunarstyrksins.