Innritun stendur yfir

Lokafrestur til að innrita sig í FSu er næstkomandi sunnudagur, 1. desember.
Einstaklingar sem ætla að stunda nám þurfa að ljúka vali á áföngum fyrir þennan tíma.

Ekki verður tekið við umsóknum sem berast of seint.

Nemendur sem ekki hafa skráð val en ætla samt að vera í skólanum á vorönn þurfa að hafa samband við áfangastjóra eða námsferilsstjóra hið fyrsta.