Innritun lokið

Skólinn hefur innritað 271 nýnema. Nýnemar og foreldrar/forráðamenn hafa fengið tölvupóst með ýmsum hagnýtum upplýsingum um innritunargjöld og skólabyrjun í haust.

Alls verða um 1030 nemendur í dagskólanum næsta haust ef öll skila sér eftir sumarfrí. Það er lítilsháttar fjölgun frá síðasta hausti. Að auki verða nemendur á Litla Hrauni & Sogni og grunnskólanemendur í fjarnámi.

Skólinn hefur boðið upp á nám í kvöldskóla undanfarnar annir. Í haust verða tveir hópar, einn í pípulögnum og einn í rafvirkjun. Báðir hópar eru fullir en alls sóttu 69 um 28 pláss. Það er því ljóst að mikil eftirspurn er eftir kvöldnámi í iðngreinum, sem er fagnaðarefni.

Aðsókn að skólanum er alltaf mjög góð og skólinn verður þétt setinn í haust eins og undanfarin ár. Allir nýnemar fá skólavist en því miður var ekki hægt að taka við öllum eldri nemendum að þessu sinni.

Við erum full tilhlökkunar að taka á móti nýjum nemendum í haust. Nýnemar eru boðnir velkomnir á nýnemadegi 18. ágúst. Þann dag opnar einnig fyrir INNU. Kennsla hefst þann 19. ágúst samkvæmt stundaskrá.

Hér má sjá skóladagatal skólaársins 2026-2027.