Innritun fyrir vorönn 2011 lýkur 30. nóvember

Nýjar umsóknir um skólavist skulu berast skólanum með rafrænum hætti. Slóðin er http://www.menntagatt.is/innritun.


Umsækjendur geta skráð óskir um áfanga í athugasemdareit en æskilegt er að þeir komi í skólann og velji sér áfanga í samráði við ráðgjafa. Upplýsingar um áfanga í boði og inntökuskilyrði eru á vef skólans.

Þeir sem eru við nám í skólanum nú á haustönn og hafa þegar skráð val í Innu eru innritaðir í skólann á vorönn. Nemendur sem ekki hafa skráð val en ætla samt að vera í skólanum á vorönn þurfa að hafa samband við áfangastjóra eða námsferilsstjóra hið fyrsta.