Indversk matargerðarlist kynnt

Mánudaginn 27. september komu gestakennarar í matreiðsluáfangann í FSu.  Það voru William Varadaraj, sem starfar við skólann þó á öðru sviði sé, og Mercy kona hans. Þau kynntu indverska matargerð og stýrðu nemendum inn í völundarhús matargerðarlistarinnar. Ekki var annað að sjá en að nemendur kynnu vel að meta þessa tilbreytingu og matinn sem til varð í tímunum.