HVERNIG VERÐUR ÞAÐ BETRA?
Forsetaákallið TÖLUM SAMAN fór fram í FSu laugardaginn 10. október síðastliðinn í verknáms húsnæði Hamars og hófst klukkan 10 um morguninn þar sem tímaplan var rætt og tæknimálum komið í lag. Húsið og dagskráin opnaði síðan fyrir almenning klukkan 13.30 og beint streymi hófst frá skipuleggjendum. Samtalið sjálft hófst svo hálftíma síðar með því að forseti Íslands Halla Tómasdóttir ávarpaði samkomuna um allt land.
Umræðuefnin voru af ýmsum toga og snerust um framtíðina, gildi og mikilvægi menntunar, umburðarlyndi manna, tungumálið, möguleika og vandamál gervigreindar, samfélagið, mannleg samskipti, náttúruna og húsnæði svo nokkur séu nefnd. Að sögn Idu Lön dönskukennara og fagstjóra við FSu tókst skipulagið innan húss mjög vel. „Nemendur okkar voru æði og samtalið hér stóð lengst á landinu. Hvernig verður það betrar?”
id / jöz







