Hver á afmæli í dag?

Afmæli starfsmanna FSu hafa verið óvenju áberandi í skólanum síðan hin ráðagóða stjórn Starfsmannafélagsins komst til valda. Hefur varla liðið sá dagur að formaðurinn, Ragnar Geir, hafi ekki kvatt sér hljóðs á kaffistofunni til að afhenda gjafir og syngja fyrir afmælisbörn. Hefur Ragnar meira að segja samið sérstakan afmælissöng við gamalt þýskt drykkjukvæði. Þessi þýsk-íslenski afmælissöngur hljómaði einkar vel á föstudaginn í tilefni af sextugsafmæli Hannesar Stefánssonar nú um helgina. Texta Ragnars er að finna hér.