Hundurinn Plútó í fleirtölu

Gulir hundar óðu hér um ganga skólans á föstudag. Þar voru á ferð dimmitantar, nemendur sem stefna á að ljúka námi á vorönn. Hófu hundarnir upp raust  sína og sungu fyrir nemendur og starfsfólk. dimmv13Því næst gæddu þeir sér á kjötsúpu með starfsfólki og héldu svo út í óvissuferð. Í næstu viku tekur svo við próflestur, en um 117 nemendur hyggjast brautskrást úr námi við skólann. Brautskráning fer fram föstudaginn 24. maí kl. 14.