Hönnunarsamkeppni

Fréttatilkynning
 
Fjölbrautaskóli Suðurlands – Sýning á tillögum úr hönnunarsamkeppni um stækkun verknámsaðstöðu við skólann.
Föstudaginn 14. júní nk. kl. 16 verða úrslit úr opinni samkeppni um hönnun á stækkun verknámsaðstöðu við Fjölbrautaskóla Suðurlands kunngjörð í húsnæði skólans.
 
Alls bárust 25 tillögur í samkeppnina og verða þær allar til sýnis í skólanum til kl. 18 á föstudaginn.
 
Sýningin verður opin almenningi sem hér segir:
15.-16. júní kl. 11-14,
17. júní kl. 10-12,
18.-21. júní kl. 9-15,
24.-28. júní kl. 11-14.
 

F.h. dómnefndar,

Þórunn Jóna Hauksdóttir formaður