Hjólum í skólann

Skólinn tók þátt í átakinu Hjólum í skólann dagana 10.- 16. september. Fsu lenti 3. sæti í flokki skóla sem eru með fleiri en 1000 nemendur og starfsfólk, en veittar eru viðurkenningar fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Alls tóku 19 framhaldsskólar þátt í ár.

Kristín Rut Eysteinsdóttir, nemandi við skólann, vann verðlaun í Instagramleik Hjólum í skólann, en þar gátu þátttakendur sent inn myndir.

Nánari upplýsingar um úrslit má finna á hjolumiskólann.is.

Á myndinni má sjá hjólreiðakappann Kristínu Rut, en hún hjólar í skólann frá Tjarnarbyggð.