HINSEGIN DAGAR OG HINSEGIN VEGGUR

Hinsegin dagar voru haldnir hátíðlegir í Árborg vikuna 2. - 8. mars síðastliðinn. Af því tilefni fögnuðu FSu-ingar fjölbreytileikanum. Skólin var skreyttur hinsegin litunum, nemendur í kynjafræði útbjuggu veggspjöld með fróðleik um hinseginleikann og hengdu um skólann og fyrirlestur haldinn á sal fyrir nemendur um hinsegin samfélagið frá Samtökunum 78.

Þá máluðu nemendur af listnámsbraut austurvegginn í anddyri skólans í regnbogalitunum. Það gerðu þau Dagmar, Elín Kristín, Malwina Tyl, Oliwia Banach og Nikodem (Nikk). Þá bauð nemendafélagið upp á köku í tilefni daganna og mötuneyti skólans var með í stemmningunni. Skrifstofa skólans og stjórnendagangur voru einnig skreytt regnbogalitunum. Jafnréttisfulltrúi skólans er Karl Sigtryggsson enskukennari.

ks / jöz