Heimsókn í Ráðhús Árborgar

Nýlega var nemendum í Stjórnmálafræði boðið í heimsókn í ráðhús Árborgar. Þar tók Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri sveitarfélagsins, á móti hópnum og fræddi m.a.a um skyldur og starfsemi sveitarfélaga. Margt fróðlegt kom fram í heimsókninni og í umfjöllun Ástu og nemendur þakka fyrir möguleikann á uppbroti sem slíku.