Heimsókn frá Sunnulæk

Ný streyma grunnskólanemar i FSu til að kynna sér námsframboð skólans og annað sem þar er í boði. Á dögunum fengum við heimsókn úr Sunnulækjarskóla. Þar voru á ferðinni 4 nemendur af starfsbraut ásamt kennara og stuðningsfulltrúa. Tveir þessara nemenda ljúka 10. bekk í vor og hyggjast þá hefja nám í FSu.