HEIÐURSMENN HALDA TIL VESTJARÐA

Vordagana 30. apríl til 3. maí fóru húsasmíðameistarar FSu - Lárus Gestsson, Svanur Ingvarsson og Hjalti Guðmundsson í heimsókn til Ísafjarðar á vegum VERKMENNTAR sem er félag verkmenntakennara á Íslandi. Í framhjáhlaupi má geta þess að nefndur Svanur á heiðurinn að heitinu VERKMENNT. Huggulegir og menningarlegir buðu þeir að sjálfsögðu betri helmingi sínum í þessa ferð.

Tilgangurinn var að sækja heim Menntaskólann á Ísafirði og efla faglegt samband íslenskra verkmenntakennara. En faglegt samstarf er mikilvægt í endurmenntun og stuðlar að starfsþróun. „Það er ómetanleg reynsla að koma í aðra skóla og sjá hvernig kennsla fer þar fram – bæði til samanburðar og hvatningar” segir Lárus Gestsson fagstjóri húsasmíðagreina í FSu.

Heiðrún Tryggvadóttir skólameistari Menntaskólans á Ísafirði tók á móti gestum og hélt innihaldsríka kynningu um skólastarfið. En að mati Lárusar er húsakostur verklegrar kennslu á Ísafirði og víða annars staðar bágborinn „svo vægt sé til orða tekið. Aðdáunarvert er hversu lausnamiðað fólk getur unnið og kennt við svo krefjandi aðstæður.”

Að kynningu lokinni var haldinn fundur þar sem Heiðrún skólameistari ræddi stofnun Iðnmenntaráðs að danskri fyrirmynd sem komið var á laggirnar á Vestfjörðum árið 2024. Vakti þessi hugmynd sérstakan áhuga FSu kennara en ráðið er hugsað til að efla samstarf við atvinnulífið og styðja við verknám. Á fundinn kom ungur fulltrúi vestfirsks atvinnulífs sem rekur byggingafyrirtæki á Ísafirði og flutti erindi sem tengdist iðnnámi, ferilbók og sveinsprófum. Ljóst var af því erindi að samstarf skóla og atvinnulífs lofar góðu á Ísafirði og að bjartsýni ríki um frekara samstarfi skóla og atvinnulífs á Íslandi. En að mati Lárusar Gestssonar hefur það samstarf verið frekar dapurt og lítið – hingað til.

Þegar fagstjórinn Lárus Gestsson er spurður að lokum um gildi svona ferða stendur ekki á svari. „Það myndast alltaf svo innihaldsríkar umræður um ýmis mál sem tengjast faglegu starfi okkar og því sem við erum að glíma við í verklegri kennslu. Þessi þáttur samtals og samstarfs er mikils virði fyrir fagmennskuna og hjálpar okkur að missa ekki móðinn þó við séum oft við að glíma við erfið verkefni í kennarastarfinu.”

lg / jöz