Haustgangan

Föstudaginn 11. september stóð starfsmannafélag FSu fyrir árlegri haustgöngu. Að þessu sinni var gengið um Hellisskóg, listsýningin Ferjustaður skoðuð og loks dvalið í hellinum um stund þar sem nesti var snætt úr malpokum, sungið og sagðar gamansögur. Sérlegur leiðsögumaður var Alda Sigurðardóttir og heiðursgestur Þór Vigfússon.