Haustannarlok

Búið er að opna Innu og geta nemendur skoðað einkunnir sínar þar. Inna er lokuð þeim sem eiga útistandandi gjöld á haustönn.

Á morgun, þriðjudaginn 17. desember, er prófsýning kl.12.30 -14.00. Nemendur eru hvattir til að hitta kennara, skoða prófin sín og sækja verkefni. Á sama tíma tekur bóksalan á móti notuðum bókum. Athugið aðeins þennan eina dag.

Föstudaginn 20. desember er brautskráning sem hefst kl.14.