Harpa er dúx FSu vorið 2018

Harpa Svansdóttir, dúx FSu á vorönn 2018.
Harpa Svansdóttir, dúx FSu á vorönn 2018.

 Harpa Svansdóttir er dúx FSu á vorönn 2018, en brautskráning fór fram í laugardaginn 26. maí. Harpa, Vilborg María Ísleifsdóttir og Almar Óli Atlason hlutu viðurkenningu frá Hollvarðasamtökum FSu. Harpa hlaut að auki viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum og stærðfræði. Vilborg María hlaut viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í ensku, íslensku, þýsku, sögu og að auki Menntaverðlaun HÍ. Almar Óli hlaut viðurkenningu fyrir frábæran árangur í vélvirkjun. Brynja Sólveig Pálsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í félagsfræði og Mathias Bragi Ölvisson hlaut viðurkenningu fyrir frábæran árangur í félagsgreinum. Snorri Björn Magnússon hlaut viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í frönsku og heimspeki. Hekla Björk Grétarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góða ástundun og árangur í stærðfræði. Hilmar Heiðberg Björgvinsson hlaut viðurkenningu fyrir áhuga og eljusemi í handverki og hönnun. Erika Mjöll Jónsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir vinnusemi og drifkraft í íþróttum og íþróttafræðum. Dröfn Sveinsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í spænsku. Eva María Larsen Bentsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í dönsku. Steinar Hermannsson hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í rafmagnsgreinum, Sara Lind Sigurðardóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í námi á hestabraut og Sævar Halldórsson fyrir góðan árangur í námi á húsasmíðabraut. Steinþóra Jóna Hafdísardóttir hlaut viðurkenningu fyrir frábært framlag til starfs kórs skólans og Þórunn Ösp Jónasdóttir og Elísabet Davíðsdóttir hlutu viðurkenningar fyrir framlag sitt til félagslífs skólans.

Fleiri myndir frá brautskráningu má finna á fésbókarsíðu skólans.