Hangiketið etið

Sú hefð hefur skapast að skólinn bjóði starfsfólki sínu í hangiket og tilheyrandi meðlæti á fyrsta prófdegi haustannar í nemendamötuneytinu.Þessi árlega hangiketsveisla var haldin miðvikudaginn 1. desember síðastliðinn. Tóku starfsmenn hraustlega til matar síns eins og vænta mátti. Á myndinni eru þeir Jón Sigursteinn, Valur og Grímur i forgrunni en að baki þeim má sjá nokkra starfsmenn niðursokkna í fæðuinntöku.