Handboltastrákar úr leik

Selfossliðið í handbolta féll úr bikarkeppninni á föstudagskvöldið er það tapaði á heimavelli fyrir Gróttu í undanúrslitum 30:31 eftir framlengdan og æsispennandi leik. Liðið er að stórum hluta skipað leikmönnum úr handboltaakademíu FSu og meðalaldurinn aðeins um 19 ár. Þrátt fyrir tapið er þetta frábær árangur hjá strákunum og gott innlegg í reynslubankann.