GRÆNFÁNINN Í ÞRIÐJA SINN

Grænfáninn er verkefni sem hefur það hlutverk að leiða skóla í faglegri og árangursríkri vinnu með sjálfbærni í víðum skilningi. Er það gert í tengslum við áherslur aðalnámskrár og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Á vormánuðum fékk Fjölbrautaskóli Suðurlands Grænfánann afhentan í þriðja sinn. Við skólann starfar umhverfisnefnd sem er skipuð nemendum ásamt fagkennara sem heldur utan um starfið. Í iðkun sinni sjá nemendur um að fylgjast með ferðamáta nemenda og starfsfólks til skóla og hvetja þá til að ganga eða fara saman í bíl ásamt því að gefa matarsóun gaum og skrá hana hana hjá sér og bera saman frá önn til annar.

Starfið þennan skólavetur gekk mjög vel. Umhverfisdagar voru haldnir 10. til 14. mars með skiptifatamarkaði, grænum degi og merkjasamkeppni. Einnig fékk Grænfánanefndin styrk frá umhverfis- og orkustofnun til að hreinsa ströndina milli Eyrarbakka og Stokkseyri og tíndu nemendur hvorki meira né minna en 224 kg af rusli. Í sumar er stefna nefndarinnar sett á þýsk-frönsku borgina Strasbourg að sækja Evrópuþing ungmenna.

jöz / hþs