Gleðitónleikar

Á þriðjudag eftir hádegi voru haldnir gleðitónleikar fyrir nemendur skólans. Hljómsveitin Kiryama family spilaði gæðapopp á sal og starfsfólk framreiddi grillaðar pylsur handa nemendum við inngang. Tónleikarnir koma í stað hefðbundinnar busavígslur sem frá og með þessu skólaári heyra sögunni til hjá FSu. Er mál manna að vel hafi tekist til og tónleikarnir marki upphaf annar á gleðilegan og jákvæðan hátt. pulsur

Á meðfylgjandi myndum má sjá meðlimi Kiryama family ásamt skólameistara og nemendur gæða sér á grillmeti.