Glæsilegur árangur hjá Boxliði FSu

Lið FSu gerði sannarlega góða ferð í Háskólann í Reykjavík um helgina þar sem þau tóku þátt í úrslitum og hrepptu þriðja sætið í framkvæmdakeppni framhaldsskólanna, Boxinu. Í fyrsta sæti var lið Kvennaskólans og annað sætið vermdi lið Menntaskólans í Reykjavík. Keppnin var gríðarlega spennandi og ekki ljóst fyrr en í lokaþraut hver endanleg úrslit yrðu. Lið FSu skipuðu þau Erlendur Ágúst Stefánsson, Gísli Þór Axelsson, Sölvi Snær Jökulsson, Bergþóra Rúnarsdóttir og Hrólfur Geir Björgvinsson.
Markmið keppninnar er að kynna og vekja áhuga á tækni, tækninámi og störfum í iðnaði og má segja að verið sé að etja kappi í hugvitssemi og verkviti. Í úrslitakeppninni fóru liðin í gegnum þrautabraut með
sjö stöðvum  og fengu hálftíma til að leysa hverja þraut.  Hvert lið var skipað fimm einstaklingum og þrautirnar settar saman af fyrirtækjum úr ólíkum greinum iðnaðarins með aðstoð fræðimanna
Háskólans í Reykjavík. Við mat á lausnum réð meðal annars tími, gæði lausnar og frumleiki.  Þrautirnar voru afar fjölbreyttar og reyndu á ólíka þætti. Mikil leynd hvíldi yfir því hverjar þrautirnar væru og sérstakir siðgæðisverðir fylgdu liðunum eftir á keppnisdaginn svo að enginn fengi upplýsingar um þær þrautir sem átti eftir að leysa.boxid3

Þetta var í þriðja skiptið sem Boxið var haldið og sendu níu skólar átján lið í keppnina. Þau tóku þátt í forkeppni þar sem átta efstu liðin komust áfram, en þau voru Menntaskólinn í Reykjavík, Verslunarskóli Íslands, Tækniskólinn, Menntaskólinn við Sund, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Flensborgarskólinn, Kvennaskólinn og Menntaskólinn við Hamrahlíð.
Að keppninni standa Samtök iðnaðarins, Háskólinn í Reykjavík og Samband íslenskra framhaldsskólanema, en fyrirtækin sem komu að gerð þrautanna í ár eru Ístak, Marel, Skema, Járnsmiðja Óðins, Promens, TM Software og Marorka.

Umsjón með hópnum hafði Ágústa Ragnarsdóttir, myndlistakennari.

Á myndunum má sjá boxlið FSu að leysa þraut og stilla sér upp fyrir myndatöku. Frá vinstri á efri mynd Bergþóra Rúnarsdóttir, Sölvi Snær Jökulsson, Hrólfur Geir Björgvinsson, Erlendur Ágúst Stefánsson og Gísli Þór Axelsson.