Glæsileg gjöf

Félag rafiðnaðarmanna á Suðurlandi, fyrir hönd FÍR, Félag íslenskra rafvirkja, og Smith og Norland gáfu skólanum nýverið fimm Simens LOGO stýrivélar. Þessi gjöf kemur sér vel við kennslu í grunndeild rafiðna.

Á myndinni er Ómar Baldursson formaður félagsins og Þór Stefánsson kennari í rafiðnum.

Viðstödd afhendinguna voru einnig nemendur og kennarar í grunndeild rafiðna og stjórnarmenn FÍR, auk skólameistara og aðstoðarskólameistara.