Gettu betur - lið FSu komið áfram!

Lið FSu sigraði lið Menntaskóla Borgarfjarðar í spurningakeppninni Gettu betur í gær með 27 stigum gegn 16. FSu-ingar eru því komnir áfram í aðra umferð sem fer fram á Rás 2 dagana 19.- 20. janúar. Lið FSu skipa þau Aðalbjörg Ýr Sigurbergsdóttir, Ingibjörg Hjörleifsdóttir og Jakob Burgel. Áfram FSu!