Gettu betur hefst

Spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu hófst í vikunni á Rás tvö. Lið Fjölbrautaskóla Suðurlands æfir nú af kappi fyrir sína fyrstu viðureign sem verður í beinni útsendingu á mánudaginn 14. janúar kl. 19.30 Liðið mætir þá Menntaskólanum við Sund.

Gettu betur lið skólans er skipað þeim Gísla Þór Axelssyni, Runólfi Daðasyni og
Eyþóri Heimissyni. Þjálfari er Hannes Stefánsson, kennari.

Við hvetjum alla til að stilla á Rás tvö á mánudaginn og fylgjast með.

Myndin var tekin í vikunni þegar liðið var við æfingar. Frá vinstri: Runólfur Daðason, Gísli Þór Axelsson, Eyþór Heimisson og Hannes Stefánsson.