Getraun á bókasafninu

Á Kátum dögum í liðinni viku var boðið upp á getraun á bókasafninu. Spurt var um ýmislegt sem sneri að tónlist, ljóðlist og bókum. Ágætis þátttaka var í getrauninni og voru þrír getspakir nemendur dregnir úr pottinum. Hinir heppnu eru Dagbjartur Sebastian Østerby Christensen, Hrefna Björg Ragnarsdóttir og Óttar Andri Óttarsson. Að gjöf fengu þau geisladiska með íslenskum tónlistarmönnum. Er þeim og sömuleiðis öllum hinum þökkuð þátttakan.