Garðyrkjuverðlaunin í 20 ár

Verðlaunahafar 2004
Verðlaunahafar 2004

Í áratugi hefur sumrinu verið fagnað í Garðyrkjuskólanum á sumardaginn fyrsta. Í ár verður engin breyting þar á og búið er að skipuleggja hátíðarhöld þann 25. apríl n.k. Árið 2004 var stofnað til Garðyrkjuverðlaunanna þar sem skólinn hefur heiðrað aðila inna garðyrkjufagsins.  
Á myndinni má sjá fyrstu handhafa heiðursverðlauna garðyrkjunnar þau Óla Val Hansson, Hólmfríði A. Sigurðardóttur og Jón H. Björnsson ásamt fleirum.

Garðyrkjuverðlaun ársins verða veitt samkvæmt venju á sumardaginn fyrsta, þann 25. apríl nk. við hátíðlega athöfn á opnu húsi í Garðyrkjuskólanum á Reykjum sem nú er starfræktur undir hatti Fjölbrautaskóla Suðurlands, FSu. Með verðlaunaveitingunni vill Garðyrkjuskólinn – FSu heiðra þá sem staðið hafa sig vel í að vinna að framgangi garðyrkjunnar á ýmsum sviðum hennar. Sú hefð hefur skapast að afhenda verðlaun í þremur flokkum en fleiri en einn geta fengið verðlaun í hverjum flokki, það er í höndum dómnefndar hverju sinni að ákveða það.

Dómnefndina skipa eftirtaldir starfsmenn skólans: Björgvin Örn Eggertsson, brautarstjóri skógar og náttúru, Guðríður Helgadóttir, fagstjóri garðyrkjunáms og Guðrún Þórðardóttir, bókasafnsfræðingur.

Það er skólanum kappsmál að sem flestir komi að því að benda á þá aðila sem kemur til greina að heiðra með garðyrkjuverðlaununum. Hér með er óskað eftir tilnefningum í þá þrjá flokka sem taldir eru upp hér fyrir neðan. Hverri tilnefningu þarf að fylgja örstutt röksemdafærsla fyrir því af hverju viðkomandi á verðlaun skilið.

Verðlaunaflokkarnir eru eftirfarandi:

1) Heiðursverðlaun garðyrkjunnar. Hér er óskað eftir tilnefningum um einstaklinga sem skarað hafa fram úr á sviði garðyrkjunnar að mati atvinnulífsins og skólans.

2) Verknámsstaður ársins. Hér er óskað eftir að tilnefndur verði verknámsstaður ársins 2024, staður sem hefur staðið sig sérlega vel við að leiðbeina nemendum skólans í verknámi.

3) Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar. Hér er óskað eftir að tilnefndir verði aðilar sem eru að vinna að athyglisverðum og framsæknum nýjungum í greininni og eiga skilið að fá hvatningu til að halda áfram á sömu braut.

Tilnefningar þurfa að berast skólanum í síðasta lagi mánudaginn 8. apríl 2024 á netfangið boe@fsu.is