Fyrsta kvöldvakan

Fyrsta kvöldvaka annarinnar var haldin fimmtudagskvöldið 20. janúar. Meðal skemmtikrafta voru hljómsveitirnar Sendibíll og Agent Fresco. Einnig fór fram spurningakeppni milli Gettubeturliðs FSu og Útsvarsliðs Árborgar. Fór svo að Árborgarliðið hafði sigur að lokum í þessum æfingaleik. Þess má geta að fyrsta lota FSu í Gettu betur fer fram 2. febrúar næstkomandi.