Fyrrverandi nemendur FSu í æfingakennslu

Síðastliðnar vikur hafa þær Eyrún Björg Magnúsdóttir og Álfheiður Tryggvadóttir verið í áheyrn og æfingakennslu í félagsfræði undir leiðsögn Helga Hermannssonar og Þórunnar Elvu Bjarkadóttur félagsfræðikennara. Þær eru báðar stúdentar frá Fjölbrautaskóla Suðurlands og eru núna að ljúka kennsluréttindanámi við Háskólann á Akureyri. Innkoma þeirra inn í félagsfræði 103 og 203 er partur af námi þeirra við HA.