FYRIRMYNDIR Í ÖRYGGISMÁLUM OG FAGMENNSKU

Formleg afhending vinnufatnaðar nemenda á fyrstu önn húsasmíðabrautar fór fram á haustdögum með kökum og góðu spjalli. En í námsskrá verklegra áfanga kemur skýrt fram að nemendur njóta ekki kennslu í verklegum fögum nema þeir séu í öryggisskóm og hlífðarfatnaði og beri öryggisgleraugu og heyrnahlífar. Um er að ræða afar vandaðan búnað sem endist lengi ef farið er vel með hann. Vert er að nefna að verkgreina kennarar starfa samkvæmt sömu reglum og eru ásamt nemendum fyrirmyndir í öryggismálum og faglegum vinnubrögðum.

Styrktaraðilarnir – BYKO og Hagar – standa að þessum viðburði ásamt FSu og kosta hann að lang stærstu leyti en nemendur greiða sjálfir um það bil fjórðung af kostnaði. Við sama tækifæri færði verslunarstjóri BYKO á Selfossi trédeild FSu18 volta vélasett með fimm vélargerðum auk þess sem nemendur fengu styrk í formi viðskiptaafsláttar.

Kennarar og nemendur á húsasmíðabraut FSu færa styrktaraðilum kærar þakkir fyrir þeirra framlag og stuðning.

lg / jöz