Fundað yfir kræsingum

Kennslustjórafundir í FSu hafa síðustu annir verið haldnir í matstofu kennslueldhússins í Odda eftir kennslu á miðvikudögum. Þessir fundir hafa mælst ágætlega fyrir, ekki síst vegna veitinganna sem matreiðslukennarar skólans hafa séð um. Á myndinni er Kristín Stefánsdóttir að taka við þökkum fyrir kræsingar fundarins síðastliðinn miðvikudag.