FSu sigraði Verslinga

Gettu betur lið FSu.
Gettu betur lið FSu.

Lið FSu er komið áfram í 2. umferð í spurningakeppninni Gettu betur eftir sannfærandi sigur á liði Verslunarskólans í gærkvöld. FSuingar rúlluðu upp hraðaspurningum og gáfu liði Versló aldrei færi á að ná sér og luku keppni með 32 stig gegn 17 stigum Verslinga.

16 lið fara áfram í 2. umferð sem hefst í næstu viku.

Lið Gettu betur skipa þau Vilborg María Ísleifsdóttir, Jakob Burgel og Ísak Þór Björgvinsson.