FSu sigraði Keflavík

Körfuknattleikslið FSu hóf veturinn með krafti og sigraði sterkt lið Keflavíkur með 112 stigum gegn 81. Nánari umfjöllun um leikinn má finna á heimasíðu FSu-karfa.

Liðið mætir næst Skallagrími í Borgarnesi í dag, föstudag og því næst Breiðabliki, sunnudaginn 27. september kl. 19.15 í Iðu. 

Við hvetjum alla til að mæta og styðja við liðið. Áfram FSu!