FSu í sjónvarpið

Gettu betur lið FSu er komið í 8-liða úrslit keppninnar eftir sigur á Starfsmenntabrautinni á Hvanneyri með 11 stigum gegn 6. 8- liða úrslitin fara fram í sjónvarpinu í febrúar og mars. Lið FSu skipa þeir Eyþór Heimisson, Gísli Þór Axelsson og Gunnlaugur Bjarnason. Þetta er þriðja árið í röð sem FSu kemst í sjónvarpið og fimmta skiptið frá árinu 2006. Það má því með sanni segja að FSu sé á góðri siglingu í keppninni og spennandi verður að fylgjast með skólanum næstu árin. Dregið verður í 8-liða úrslit mánudaginn 30. janúar.