FSu í sjónvarpið

Lið FSu í Gettu betur er komið áfram í 3. umferð keppninnar eftir sigur á Menntaskólanum í Kópavogi í gærkvöldi, 16:12. Þar með eru okkar menn, þeir Magnús Borgar, Óskar og Sigmar Atli, komnir í sjónvarpshluta keppninnar sem hefst 19. febrúar.