FSu í 8 liða úrslit

FSu er komið í 8 liða úrslit í Lengjubikarnum. Með því að vinna Breiðablik í gær, sunnudag, tryggði liðið sér sigur í sínum riðli keppninnar og heimavallarrétt í 8 liða úrslitum, þar sem FSu mætir Njarðvík. Leikurinn verður á morgun, þriðjudag, kl. 19:15 í Iðu. 

 

Full ástæða er til að fagna góðu gengi FSu-liðsins í fyrstu prófum þess meðal bestu liða landsins.