FSu ER ORÐINN UNESCO SKÓLI

Fjölbrautaskóli Suðurlands er orðinn UNESCO-skóli. Alls eru því UNESCO-skólar á Íslandi orðnir 17 talsins, einn leikskóli, sex grunnskólar og tíu framhaldsskólar. FSu hefur verið með sérstaka áfanga í boði um heimsmarkmiðin sem allir nýnemar skólans verða að taka. Á haustönn er um að ræða áfanga sem snýr að félagslegu heimsmarkmiðunum og á komandi vorönn verður kenndur áfangi sem snýr að umhverfismálum.

Kristrún María Heiðberg, verkefnastjóri UNESCO-skóla hélt fyrirlestur um heimsmarkmiðin fyrir nemendur skólans ásamt því að funda með stjórnendum og starfsfólki skólans um UNESCO-skóla. Í kjölfarið var ákveðið að sækja um UNESCO aðild. Leiðandi kennari í FSu í þessum efni er Ragnheiður Eiríksdóttir. UNESCO –skólar er eitt elsta skólanet í heimi, starfrækt frá árinu 1953. Skólarnir eru nú um 12.000 talsins og starfa í yfir 180 löndum um allan heim. UNESCO-skólar leggja áherslu á heimsmarkmiðin, starfsemi SÞ, alþjóðasamvinnu og frið og mannréttindi.

Á meðfylgjandi mynd má sjá nemendahóp í áfanganum ERGÓ þar sem fjallað er um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni.

jöz / rei