FSu áfram í Gettu betur

Miðvikudaginn 2. febrúar keppti lið FSu í Gettu betur við lið Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu. Okkar menn höfðu góðan sigur, 18:8, og eru því komnir áfram í aðra umferð keppninnar sem einnig fer fram á Rás 2. Lið FSu skipa þeir Magnús Borgar Friðriksson, Óskar Hróbjartsson og Sigmar Atli Guðmundsson. Fylgjast má með gangi keppninnar á ruv.is auk beinna útsendinga á Rás 2.