Frumleg kvöldmessa með Kór FSu

Sunnudaginn 6. mars kl. 20 verður kvöldmessa í Selfosskirkju með Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands. Frumleg framsetning verður þar í fyrirrúmi því kórfélagar munu gera trú og tilveru skil á óhefðbundinn hátt. Kórinn söng í kvöldmessu í kirkjunni fyrir áramót sem gerði gríðarlega lukku meðal viðstaddra en þá var fullt út úr dyrum. Og nú mun kórinn enn sýna hvað í honum býr. Umsjón með kvöldmessunni hafa Stefán Þorleifsson kórstjóri og sr Óskar Hafsteinn Óskarsson prestur. Allir velkomnir!