Frábær námsárangur

Gísli Þór Axelsson er dúx FSu. Hann brautskráðist í dag af náttúrufræðibraut með hæstu einkunn sem gefin hefur verið við skólann frá upphafi, meðaleinkunnina 9,88. Hann hlaut fjölmörg verðlaun í einstökum greinum, fékk viðurkenningu fyrir framlag til félagslíf skólans og viðurkenningu frá Hollvarðasamtökum FSu. Athygli vekur að Gísli Þór er fæddur árið 1995 og er að ljúka stúdentsprófi 18 ára gamall.

Alls útskrifuðust 96 nemendur í dag, þar af 68 stúdentar. 5 nemendur brautskrást af tveimur brautum, þar af einn af tveimur stúdentsbrautum.