Forvarnardagur í október

Í FSu var ákveðið að gera forvarnardeginum 5. október skil með því að ræða við alla nemendur í Íþróttum 101 sem eru allflestir nýnemar skólans.
Þeir Sverrir og Magnús íþróttakennarar tóku verkefnið að sér og nýttu íþróttatíma vikuna 3.- 7. október til að ræða við krakkana sýna þeim myndbönd af vefnum http://www.forvarnardagur.is/ m.a.  myndbönd frá nemendum í FSU og síðan var umræða um myndefnið og mikilvægi þess að hugleiða þessa hluti.Á myndinni má sjá þá félaga Magnús og Sverri sem sáu um forvarnarfræðslu.