Forseti Íslands kemur í heimsókn

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, ræðir við nemendur um lífið og tilveruna.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, ræðir við nemendur um lífið og tilveruna.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, heimsótti skólann í dag í tengslum við Regnbogadaga. Forsetinn ræddi við nemendur á sal um að fagna fjölbreytileikanum , mennskuna, að hafa trú á sjálfum sér og margt fleira. Nemendur fengu tækifæri til að spyrja forsetann spurninga og heilmiklar umræður sköpuðust. Guðni fékk því næst skoðunarferð um skólann og kynnti sér meðal annars verknám við skólann og skoðaði nýja Hamar, verknámshús FSu. Fleiri myndir frá heimsókninni má sjá á fésbókarsíðu skólans.