Flóafár og stjörnustríð

Hið árlega Flóafár var haldið sl. föstudag. Þar kepptu 6 lið nemenda í ýmsum þrautum sem kennarar lögðu fyrir þá. Liðin sem mættu til leiks að þessu sinni nefndust Star Wars, Víkingar, Soldater, Latibær, Konungsríkið og Hálandahöfðingjar. Að lokum höfðu stjörnustríðsmenn nauman sigur í heildarkeppninni og fögnuðu með geislasverðaskaki og pizzuáti.