Fjölbreytni og sköpun á Kátum dögum

Manntafl með lifandi taflmönnum er hefðbundinn dagskrárliður á Kátum dögum.
Manntafl með lifandi taflmönnum er hefðbundinn dagskrárliður á Kátum dögum.

Kátir dagar voru haldnir í liðinni viku, en þá er hefðbundið skólastarf brotið upp og nemendur geta raðað saman eigin dagskrá útfrá viðburðum sem að sérstök Kátudaganefnd setur saman. Meðal þess sem nemendur gátu gert var að hlusta á allskonar fyrirlestra og fá fræðslu um meðal annars einelti, björgunarstarf, Dale Carnegie, tísku, húðflúr, förðun, heimsreisur, táknmál og margt, margt fleira. Kátir dagar enduðu með lokahnykk í Iðu íþróttahúsi. Fleiri myndir af Káturm dögum má finna á feisbúkksíðu skólans.