FERÐIN TIL FLÓRENS
SJÖ kennarar hinnar öfluga sérnámsbrautar FSu ferðuðust alla leið til Flórens að sækja sér endurmenntun í liðnu páskafríi. En eins og margir Íslendingar vita er Flórens höfustaður Toskana á Ítalíu og sérlega sögufræg á miðöldum og ein af auðugustu borgum þess tíma. Auk þess er Flórens að jafnaði talin vera upphafsstaður Endurreisnarinnar eða Renaissance sem markar skil miðalda og nýaldar.
Tilgangur fararinnar var að sækja Erasmus námskeið sem bar heitið Designing Inclusive Enviroment to Support ALL Students – sem mætti útleggja á íslensku: Að efla þekkingu og færni kennara til að skapa aðgengilegt námsumhverfi til stuðnings ÖLLUM nemendum.
Á námskeiðinu var fjallað um inngildandi menntun, fjölbreytileika nemenda og muninn á jafnrétti og jöfnuði auk þess að leita leiða til að greina og minnka HINDRANIR í námsumhverfi – með því að bæta kennsluhætti og skipulag. Sérstök áhersla var lögð á hagnýtar kennsluaðferðir og einfaldar lausnir í skólastofunni sem styðja nemendur með ólíkar þarfir, sjónrænan stuðning og fjölbreyttar leiðir til náms og tjáningar.
Námskeiðið sóttu heiðurskennararnir Eva Dögg Jafetsdóttir, Jónína Ósk Ingólfsdóttir, Ragnhildur Þorsteinsdóttir, Sigríður Gunnarsdóttir, Sigrún Þorkelsdóttir, Sóley Jónsdóttir og Þorbjörg Lilja Jónsdóttir. Gefa þær allar námskeiðinu og þeirri fagreynslu sem fylgir sína bestu einkunn. Eða eins og þær sögðu „fræðandi og gagnlegt námskeið sem veitir kennurum ný og frjó verkfæri til að efla inngildandi og styðjandi námsumhverfi í skólastarfi.”
sj / jöz.







